Viðskiptaskilmálar

Skilmálar og skilyrði.

Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilann.

H. Pálsson ehf., Gylfaflöt 30, 112 Reykjavík, Kennitala 500287-1609. Sími: 577 7777, vefpóstur: h@palsson.is

Söluaðili áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

Afhending vöru:

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Söluaðili ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá söluaðila til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf hjá Íslandspósti. 

Verð á vöru og sendingakostnaður.

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% virðusaukaskatti (VSK). Vara er ávallt send á ábyrgð og kostnað kaupanda.  Sé pöntuð vara ekki sótt – áskilur seljandi sér rétt til að senda vöruna til kaupanda á hans kostnað – eða að varan er geymd á kostnað og ábyrgð kaupanda og seljandi áskilur sér þá rétt til að krefjast geymslu- og umsýslugjalds.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu umbúðum, óskemmdum, þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður. (Öryggisskilmálar).

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing.

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi þar sem fyrirtækið er með lögheimili.